Fundargerð 10.11.2009

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Fundur var settur á Fjarðahóteli þann 10.11.2009 kl. 20:00.

 Á fundinum var Starfsgreinaerindi ritara, þar fjallaði ritari um sín störf hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Viðhaldsstjórnun ehf og Félagi Viðhaldsstjórnenda á Íslandi. Þar með var að mati fundarmanna lyft leyndardómshulunni af störfum ritara klúbbsins og menn urðu mun fróðari um ýmislegt á því sviði.

Næst á dagskrá var 3 mínútur og var þar fjallað um heimasíðu klúbbsins og menn voru almennt á því að það væri þess virði að halda áfram að setja inn fundargerðir og halda úti lista yfir félaga ásamt dagskrá vetrarins. Það yrði á ábyrgð ritara að sjá um hana.

Undir liðnum önnur mál var aðeins rætt um að menn þyrftu að breyta greiðslu til félagsskaparins og þeir sem enn skulduðu þyrftu að laga það hið snarasta.

Fundi slitið kl. 22:30. og menn héldu áfram léttu spjalli

Félagar RT-10 kunna Viðhaldsstjórnun ehf góðar þakkir fyrir veitingarnar á fundinum.

Síðast uppfært: Þri - 17 Nóv 09
 

Fjörufundur 17.10.2009

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Farin var fjölskylduferð í Vöðlavík á vegum RT - 16 laugardaginn 17.10.2009. Þar var svaka fjör eins og sjá má á myndum sem er að finna á myndavef okkar:

 http://www.facebook.com/home.php?#/group.php?gid=80153923295&ref=ts

Engin sérstök ástæða var fyrir ritara að halda nákvæma fundarritun af þessum skemmtilega fundi, það þótti ritara einnig gleðiefni :)

 

Fundur 29.09.2009

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Hér að neðan er að finna helstu ákvarðanir sem voru teknar á fundinum 

  • Nýr formaður setti sinn fyrsta fund.
  • Ákveðið var að hækka mánaðargjald klúbbsins í 2000kr., þetta er eftir sem áður líklegast ódýrasta gjald sem nokkur RT klúbbur tekur.
  • Formaður ætlar að fara í það að sækja um kennitölu fyrir klúbbinn.
  • Bjarni Ólafur Birkisson ætlar að taka að sér gjaldkerastörf á meðan Gestur er í ársleyfi vegna náms.
  • Það var stungið upp á c.a. 10 nöfnum af aðilum sem félagsmenn hafa áhuga á að bjóða í klúbbinn, öll nöfn voru samþykkt til frekari kynningar á starfi klúbbsins og til kynningar fyrir núverandi klúbbfélögum.
  • Pétur ætlar að ganga frá kaupum á pinnum klúbbsins (klúbbmerki), c.a. 200 stk á c.a. 40.000kr.
  • Pétur mun skoða fánamálin betur og koma með verð og magn á næsta fund.
  • Ákveðið var að klúbburinn myndi sækja um Október fund að ári og Bjarni og Sævar myndu búa til góða kynningu til að taka með á fulltrúaráðsfundinn.

Fundi lauk kl. 22:00.

 

   

Velkominn á heimasíðu RT-16, Fjarðabyggð

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Okkur í RT-16 fannst vera kominn tími til að gefa vefsíðu okkar líf í nýju umhverfi. Við vonum að ykkur líki vel og njótið þess sem sett verður hér inn á síðuna. Við höfum einnig búið til grúppu á Facebook til að halda utan um myndir í starfi okkar en það verður að sækja um að fá að komast inn á þá grúppu : http://www.facebook.com/home.php?#/group.php?gid=80153923295&ref=ts

   

Skoðanakönnun

Ertu glaður að snjórinn er kominn?
 
You are here: Home