Um RT-16

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

RT-16 er félag ungra manna á aldrinum 20 til 45 ára. Félagar eru úr hinum ýmsu starfs-stéttum þjóðfélagsins. Í hverjum klúbbi eru hámark 30 félagar, þ.e. fámennir klúbbar þar sem hverjum og einum er ætlað að taka virkan þátt í mótun félagsstarfsins.
RT er og verður karlaklúbbur, en í starfi okkar höfum við jafnan lagt ríka áherslu á mikilvægi fjölskyldunnar.

Tilgangur Round Table
Að sameina unga menn úr mismunandi starfsgreinum til þess að öðlast betri skilning á þjóðfélaginu og stöðu einstaklingsins innan þess. Að lifa eftir einkunnarorðunum í vináttu og samvinnu. Að auka alþjóða skilning og vináttu með aðild að Round Table International.

Almennir fundir klúbba
Fundir eru haldnir aðra hverja viku yfir vet-rarmánuðina. Algengasti fundartíminn er frá kl. 19- 20 til kl. 22- 23. Fundarformið sjálft og dagskrá mótar hver klúbbur að mestu sjálfur, en venjur hafa skapast um eftirfarandi atriði:
• Kynningarhringur.
• 3 mínútur. Einn framsögumaður, allir tjá sig um málefnið, sem næst 3 mín.
• Fyrirtækjaheimsóknir.
• Fyrirlestrar sem fjalla um allt milli himins og jarðar.
• Starfsgreinaerindi.
• o.fl.

 

 
You are here: Home Um RT-16